Félagatalstiltekt 14. febrúar, 2011 Eftir allsherjar tiltekt helgarinnar í húsnæði Samtakanna ´78 er komið að næsta áfanga! Ákveðið hefur verið að hreinsa upp félagatalið okkar og óskum við því eftir sjálfboðaliðum sem eru reiðubúnir að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. Ef þú hefur nokkrar klukkustundir aflögu á næstu vikum til að setjast við símann þá endilega hafðu samband við framkvæmdastjóra Samtakanna í gegnum tölvupóst: skrifstofa@gamli.samtokin78.is eða í gegnum síma samtakanna: 552-7878 frá kl: 13-17 alla virka daga.