Forsala miða í áramótapartý Samtakanna ’78 á Batteríinu Miðar á sérstöku forsöluverði til félaga í Samtökunum ’78 í Iðu við Lækjargötu í dag miðvikudag 30.12 og á morgun fimmtudag 31.12. (Iða lokar kl. 13 á gamlársdag). Verð kr. 1.990 til félaga í Samtökunum ’78 en kr. 2.500 til utanfélagsmanna. Frír drykkur til kl. 02.00Frítt fatahengi til kl. 02.00 Húsið opnar kl: 01:00 – Felix Bergsson tekur lagið og fær alla með sér í dans.– Friðrik Ómar tekur syrpu af vinsælustu lögum sínum.– Hafsteinn Þórólfsson sem söng hið ómótstæðilega „Ég er eins og ég er“ mun taka það lag þegar stemningin sýður uppúr. – DJ Dramatík ( Ísar Logi Arnarsson )– DJ Shallow & DJ Superficial ( Elín Ey & Sóley Kristjánsdóttir )– DJ Manny ( Manny Santiago )– DJ Pitti (Pétur Björgvin Sveinsson)– DJ Fun Bear (Thomas Banakas)– DJ Ingz Einnig verða fleiri óvænt atriði í þessu frábæra áramóta partýi! Tryggið ykkur míða tímanlega á þessu ómótstæðilegu forsöluverði! Athugið: Hægt verður að kaupa miða í hurð á áramótaballinu. Verð 2.500 til félagsmanna, kr. 3.500 til utanfélagsmanna. Opnunartími Iðu milli jóla og nýárs: 30.12.: 9 – 22.31.12.: 9 – 13. Sjáumst í áramamótastuði!!!