Næsta fimmtudag (10. sept) mun Íþróttafélagið Styrmis halda Haustfund á Barböru kl. 20:30, Laugavegi 22. Þetta er fyrsti fundur okkar sinnar tegundar og verður hann notaður til að fara yfir vetrarstarfið framundan. Þeir sem hafa hug á að taka þátt í starfinu, styðja félagið eða bara eru forvitnir um starfið ættu að mæta: konur og karlar, samkynhneigðir og gagnkynhneigðir, ungir og gamlir, og allt þar í kring. Ný íþróttadeild Styrmis verður kynnt á fundinum ásamt því sem fótbolta- og sunddeildir munu fara yfir starfið sitt í vetur, hvort sem það er á íþróttasviðinu eða í skemmtanamálum. Fjölmargir munu stíga á stokk og kynna ýmsar hliðar vetrarstarfsins. Við munum m.a. fjalla um:– kynning á Köln og keppnisferðinni þangað næsta sumar– fjáröflun fyrir ferðina, bókun flugs og gistingar– þjálfaramál í fótboltanum og sundinu, nýjar áherslur í boltanum, markviss og skemmtilegur þjálfunarpakki– nýr greiðslumáti æfingagjalda í boltanum– auka íþróttadagur í hverri viku þar sem allar íþróttadeildir koma saman í fjölbreyttri hreyfingu– umræður, o.fl. Allir velkomnir! Stjórn Styrmis