KVENNAGRILL Á VEITINGASTAÐNUM AF LÍFI OG SÁL, LAUGARDAGINN 19. JÚLÍ 14. júlí, 2008 Næstkomandi laugardag, 19. júlí, verður kvenna/lesbíugrill á matsölustaðnum Af Lífi og sál, að Laugavegi 55b, bakgarði (á móti Svarta Kaffi). Kveikt verður á kolunum um kl. 15:00. Grill ljúfmetið til reiðu um kl. 16:00. Kvennagrill á veitingastaðnum Af lífi og sál, laugardaginn 19. júlí Næstkomandi laugardag, 19. júlí, verður kvenna/lesbíugrill á matsölustaðnum Af Lífi og sál, að Laugavegi 55b, bakgarði (á móti Svarta Kaffi). Kveikt verður á kolunum um kl. 15:00. Grill ljúfmetið til reiðu um kl. 16:00. 2,000 kr. gjald er fyrir matinn og er þá einn stór bjór og snafs innifalið í verði. Ýmis tilboð verða á barnum fyrir þær sem vilja. Matseðill:BBQ grísarifKjúklingurHöfrungur Borið fram með:KartöflusalatiFersku salatiPiparsósuVillisveppasósu Andrea Jóns mun sjá um um tónlistina! Kl. 13:00 verður í fyrsta sinn opnuð Þjónustumiðsstöð Hinsegin Daga á Laugavegi 33. Því er tilvalið að mæta á opnunina og mæta síðan á grillið með öðrum hressum konum! Portið hjá Af lífi og sál er alveg tilvalið fyrir þennan viðburð. Fyllum garðinn af jákvæðum, skemmtilegum og hressum konum í sumar og hinsegin skapi! Sjáumst á laugardaginn þann 19. júlí!